Chill the F* out - Jafnvægi og Slökun
- Upprunalegt verð
- 4.190 kr
- Afsláttarverð
- 4.190 kr
- Upprunalegt verð
-
4.190 kr - Stykkjaverð
- /stk
Flokkar
Ein vinsælasta varan í línunni. Chill the F* Out bragðast eins og piparmyntusúkkulaði og inniheldur tvö kraftmikil aðlögunarefni, Reishi og Ashwaganda. Chill The F* Out er ætlað til langtíma notkunar fyrir sem mestan ávinning en blandan en hönnuð sem eins konar streituminnkandi þjálfun fyrir taugakerfið.
Reishi Sveppur
Ashwagandha
Hrátt kakó
Piparmynta
Kókoshneta
Tvö kraftmikil aðlögunarefni, Reishi og Ashwagandha. Reishi sveppurinn er þekktur sem The Queen Healer og getur komið jafnvægi á líkamann þar sem er ójafnvægi. Ashwagandha er ein af vinsælustu rótunum í náttúrulækningum og getur hjálpað líkamanum að aðlagast streitu. Virknin er mikil í rótinni og dregur þess vegna úr streitu ásamt því að styðja slökun og ró. Rótin hjálpar huga og líkama að vinda ofan af daglega álaginu sem við finnum mörg fyrir.
Chill The F* Out bragðast eins og milt piparmyntukakó þegar því er blandað í heitt vatn eða plöntumjólk. Svo sakar ekki að hita nokkra suðusúkkulaði mola með plöntumjólkinni ef þig langar í extra ríkan kakóbolla.
ATH að blöndurnar eru eins óunnar og hægt er, þess vegna geta duftin stundum blandast verr við vökva. Við mælum með að setja smá heitan vökva í bolla/glas, setja 1 tsk af blöndunni út í og blanda þannig, svo fyllir þú glasið með restinni af vökvanum. Svona er auðveldast að blanda þessu saman. Nema þú skellir þessu auðvitað í blandara! Þá er málið einfalt.
TILLÖGUR AÐ UPPSKRIFTUM
Latte eða smoothie: Bættu 1 tsk við uppáhalds plöntumjólkina þína eða beint í smoothie-inn þinn. Blanda saman + njóta.
Chill the F* Out Hafragrautur - settu út á hafragrautinn þinn, Chill The F* Out 1. tsk, eina msk. hnetusmjör, döðlur, sykurlaust síróp (eða hungang) og toppaðu með ávöxtum sem að þú elskar
Það má setja allar blöndurnar okkar í jógúrt, chiagrauta, aðra grauta, á ristað brauð, í kaffið, smoothie eða annarskonar drykki. Þú getur meira að segja blandað 2 mismunandi blöndum saman til að tvöfalda ávinninginn!
Ath. Hráefnin í þessari blöndu eru mjög virk. Ekki er mælt með þessari vöru fyrir barnshafandi fólk. Við mælum við að þú ráðfærir þig við lækni.
*Þessi vara er ekki ætluð til þess að greina, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma.
Öll innihaldsefnin eru frá móður náttúru og eru mjólkur, soja, hnetu og glútenlaus. Mikill metnaður er lagður í að finna gæðajurtir og plöntur í vöruna.
Hafðu samband við lækni fyrir notkun ef þú ert ólétt, með barn á brjósti eða að reyna að eignast barn. Einnig ef þú tekur lyf að staðaldri eða ert með sjúkdóm. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Þessi vara telst sem fæðubót samkvæmt íslenskri reglugerð. Í vörunum eru aðlögunarefni úr náttúrunni sem við hvetjum þig til að kynna þér. Ekki skal neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur gefur til kynna, sem er 1 tsk á dag.
Ekki skal neyta fæðubóta í stað fjölbreyttrar fæðu.