Glow Getter - Húðblanda

Glow Getter - Húðblanda

Upprunalegt verð
3.850 kr
Afsláttarverð
3.850 kr
Upprunalegt verð
Uppselt
Stykkjaverð
stk 

Hráefnin


Ath. Hráefnin í þessari blöndu eru mjög virk. Ekki er mælt með þessari vöru fyrir barnshafandi fólk. Við mælum við að þú ráðfærir þig við lækni fyrir inntöku ef þarf. 


INNIHALDSEFNI

Goji ber
Tocotrienols
Reishi
Engifer
Maca
He Shou Wu
Kókoskremduft

BRAGÐAST EINS OG
Blandan er örlítið sæt vegna Goji berjanna, þetta er ein af þessum blöndum sem er sérstök á bragðið en virkilega áhrifarík. Glow Getter er góð viðbót í ávaxta boozt.

TILVALIÐ AÐ BLANDA VIÐ
Kombucha eða ávaxta smoothies.. SJÁ UPPSKRIFTIR

GOTT AÐ SKAMMTA MEÐ
You Dew You, Better Than Botox

HVERNIG Á AÐ NOTA VÖRUNA
ATH að blöndurnar eru eins óunnar og hægt er, þess vegna geta duftin stundum blandast verr við vökva. Við mælum með að setja smá heitan vökva í bolla/glas, setja 1 tsk af blöndunni út í og blanda þannig, svo fyllir þú glasið með restinni af vökvanum. Svona er auðveldast að blanda þessu saman. Nema þú skellir þessu auðvitað í blandara! Þá er málið einfalt. 

TILLÖGUR AÐ UPPSKRIFTUM

Setur eina teskeið af Glow Getter í uppáhalds smoothie-inn (Gott með kókosvatni eða ávaxta safa í smoothie). Fyrir bestu útkomu er gott að drekka þetta á tómann maga hvenær sem er yfir daginn.

Glow Getter Skot 
Sumir vilja blanda Glow Getter í smá vatn og drekka í einum sopa. 


Allar blöndurnar okkar eru auðveldar í notkun, eru auðmeltanlegar og geta farið hratt inn í líkamsstarfsemina.

Það má setja allar blöndurnar okkar í jógúrt, chiagrauta, aðra grauta, strá yfir ristað brauð, í kaffið, smoothie eða annarskonar drykki. Þú getur meira að segja blandað 2 mismunandi blöndum saman til að tvöfalda heilsufarslega ávinninginn! 
 

 

*Þessi vara er ekki ætluð til þess að greina, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma. 
Öll innihaldsefnin eru frá móður náttúru og eru mjólkur, soja, hnetu og glútenlaus.

Mikill metnaður er lagður í að finna gæðajurtir og plöntur í vöruna. 

Hafðu samband við lækni fyrir notkun ef þú ert ólétt, með barn á brjósti eða að reyna að eignast barn. Einnig ef þú ert að taka lyf að staðaldri eða ert með sjúkdóm. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Þessi vara telst sem fæðubót samkvæmt íslenskri reglugerð. Í vörunum eru aðlögunarefni úr náttúrunni sem við hvetjum þig til að kynna þér. Ekki skal neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur gefur til kynna, sem er 1 tsk á dag. 

Ekki skal neyta fæðubóta í stað fjölbreyttrar fæðu.