Meet My Wombmate - Mömmulínan
Meet My Wombmate - Mömmulínan
Meet My Wombmate - Mömmulínan
  • translation missing: is-IS.sections.featured_product.gallery_thumbnail_alt
  • translation missing: is-IS.sections.featured_product.gallery_thumbnail_alt
  • translation missing: is-IS.sections.featured_product.gallery_thumbnail_alt

Meet My Wombmate - Mömmulínan

Upprunalegt verð
3.850 kr
Afsláttarverð
3.850 kr
Upprunalegt verð
Uppselt
Stykkjaverð
stk 

Hráefnin

Ath. Í þessari blöndu eru virk hráefni. Við mælum við að þú ráðfærir þig við lækni fyrir inntöku ef þarf. 


UM VÖRUNA
Meet My Wombmate er bragðgóð blanda sem kemur í staðin fyrir kaffi og koffín fyrir barnshafandi einstaklinga. Frábær fyrir mæður sem eru að forðast mikla koffín neyslu. Blandan bragðast eins og heitt kakó með smá bitrum keimi sem minnir á kaffi.

INNIHALDSEFNI
Túnfífilrót
Hrátt kakó
Ceylon kanill
Collagen
Lucuma
Nutmeg

HVAÐ ER Í VÖRUNNI 
Blandan inniheldur kakó og túnfífilrót, báðar þessar plöntur eru járnríkar. Fífilrótin inniheldur mikið af auðmeltanlegu kalsíum, járni, kalíum, K-vítamíni og sinki. 

BRAGÐAST EINS OG
Fullkominn kaffistaðgengils valkostur sem hægt er að njóta með heitri mjólk að eigin vali og smá sætuefni ef þess er óskað. Þetta er líka frábær leið til þess að gefa kaffinu pásu ef þú ert að drekka það. 

TILVALIÐ AÐ BLANDA VIÐ
Meet My Wombmate er með draumkennt bragð þegar það parast við haframjólk með smá hunangi, sykurlausu sýrópi eða hlynsýrópi. Ef þú vilt auka járnmagnið með blöndunni er gott að bæta smá Tahini. Bættu við einni tsk. af Ghee til að fá heilbrigða fitu með. 

GOTT AÐ SKAMMTA MEÐ
Reishi og Lions mane

SVONA NOTAR ÞÚ VÖRUNA
ATH að blöndurnar eru eins óunnar og hægt er, þess vegna geta duftin stundum blandast verr við vökva. Við mælum með að byrja setja smá heitan vökva í bolla/glas, setja 1 tsk af blöndunni út í og blanda þannig, svo fyllir þú glasið með restinni af vökvanum. Svona er auðveldast að blanda þessu saman. Nema þú skellir þessu auðvitað í blandara! Þá er málið einfalt.

 Allar blöndurnar okkar eru auðveldar í notkun, eru auðmeltanlegar og geta farið hratt inn í líkamsstarfsemina.

Það má setja allar blöndurnar okkar í jógúrt, chiagrauta, aðra grauta, strá yfir ristað brauð, í kaffið, smoothie eða annarskonar drykki. Þú getur meira að segja blandað 2 mismunandi blöndum saman til að tvöfalda heilsufarslega ávinninginn! 

 

 

*Þessi vara er ekki ætluð til þess að greina, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma. 

Öll innihaldsefnin eru frá móður náttúru og eru mjólkur, soja, hnetu og glútenlaus. Mikill metnaður er lagður í að finna gæðajurtir og plöntur í vöruna. 

Hafðu samband við lækni fyrir notkun ef þú ert ólétt, með barn á brjósti eða að reyna að eignast barn. Einnig ef þú ert að taka lyf að staðaldri eða ert með sjúkdóm. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Þessi vara telst sem fæðubót samkvæmt íslenskri reglugerð. Í vörunum eru aðlögunarefni úr náttúrunni sem við hvetjum þig til að kynna þér. Ekki skal neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur gefur til kynna, sem er 1 tsk á dag. 

Ekki skal neyta fæðubóta í stað fjölbreyttrar fæðu.