Shatavari - Hormónaheilsa

Shatavari - Hormónaheilsa

Upprunalegt verð
4.190 kr
Afsláttarverð
4.190 kr
Upprunalegt verð
Uppselt
Stykkjaverð
stk 

Flokkar

Ath. Hráefnið í þessari vöru er mjög virkt. Ekki er mælt með þessari vöru fyrir barnshafandi fólk. Við mælum við að þú ráðfærir þig við lækni fyrir inntöku ef þarf. 

UM VÖRUNA

Shatavari er besta vinkona kvenna, sérstaklega á tíma mánaðarins. Þessi rót er þekkt í Ayurveda fræðunum en Shatavari þýðir “kona með hundrað eiginmenn” - svo að skvís líði eins og drottningu, ef hún vill. Þessi aldagamla rót er frábær fyrir konur sem eru byrjaðar á blæðingum og líka fyrir þær sem eru að sigla inn í breytingaskeiðið.

Shatavari stuðlar að kynheilbrigði og kemur jafnvægi á hormónakerfið með því að stýra estrógen framleiðslu líkamans í eðlilegar horfur.

Uppruni: Suðaustur Asía, Afríka

Þú finnur shatavari í: Seal The Deal, Chill The F* Out, Shatavari

SVONA NOTAR ÞÚ VÖRUNA
ATH að blöndurnar eru eins óunnar og hægt er, þess vegna geta duftin stundum blandast verr við vökva. Við mælum með að setja smá heitan vökva í bolla/glas, setja 1 tsk af blöndunni út í og blanda þannig, svo fyllir þú glasið með restinni af vökvanum. Svona er auðveldast að blanda þessu saman. Nema þú skellir þessu auðvitað í blandara! Þá er málið einfalt. 

Latte eða smoothie: Bættu 1 tsk við uppáhalds plöntumjólkina þína eða beint í smoothie-inn þinn. Blanda saman + njóta.

Allar blöndurnar okkar eru auðveldar í notkun, eru auðmeltanlegar og geta farið hratt inn í líkamsstarfsemina.

Það má setja allar blöndurnar okkar í jógúrt, chiagrauta, aðra grauta, strá yfir ristað brauð, í kaffið, smoothie eða annarskonar drykki. Þú getur meira að segja blandað 2 mismunandi blöndum saman til að tvöfalda heilsufarslega ávinninginn! 

 

  


*Þessi vara er ekki ætluð til þess að greina, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma. 

Öll innihaldsefnin eru frá móður náttúru og eru mjólkur, soja, hnetu og glútenlaus. Mikill metnaður er lagður í að finna gæðajurtir og plöntur í vöruna. 

Hafðu samband við lækni fyrir notkun ef þú ert ólétt, með barn á brjósti eða að reyna að eignast barn. Einnig ef þú ert að taka lyf að staðaldri eða ert með sjúkdóm. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Þessi vara telst sem fæðubót samkvæmt íslenskri reglugerð. Í vörunum eru aðlögunarefni úr náttúrunni sem við hvetjum þig til að kynna þér. Ekki skal neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur gefur til kynna, sem er 1 tsk á dag. 

Ekki skal neyta fæðubóta í stað fjölbreyttrar fæðu.